Hýsing

Teris sérhæfir sig í að hýsa tölvukerfi fyrir viðskiptavini sína. Með úthýsingu má ná verulegum árangri í hagræðingu og jafnframt hafa fullkomna yfirsýn yfir hversu miklum fjármunum er varið í þennan málaflokk. Hjá Teris er lögð mikil áhersla á öryggismál og er öll starfsemi Teris vottuð samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO/IEC 27001:2005 um stjórnun upplýsingaöryggis. Með því að starfa samkvæmt þessum staðli hefur Teris náð afbragðsgóðum árangri fyrir viðskiptavini sína sem hafa í staðinn geta einbeitt sér að því að veita sínum viðskiptavinum afbragðsþjónustu án þess að þurfa að hafa áhyggjur af upplýsingatæknimálunum.

Við útfærslu á hýsingarlausnum eru þarfir og óskir viðskiptavina ávallt hafðar að leiðarljósi þó þannig að öryggi sé haft að leiðarljósi. Þær lausnir sem Teris hýsir eru meðal annars vistun búnaðar - bæði hug- og vélbúnaðar, netsambönd og varnir tengdar þeim, hýsing gagnagrunna og tengingar við þriðja aðila auk eftirlits með aðgengi þriðja aðila.

Helstu kostir hýsingar

  • Engin þörf fyrir uppbyggingu öryggiskerfa sem lúta að tæknibúnaði
  • Sparnaður í starfsmannahaldi
  • Aðgangur að öflugum og reyndum tæknimönnum Teris
  • Hýsing utan starfsstöðvar fyrirtækisins eykur öryggi, t.d. ef eldur kemur upp í starfsstöð fyrirtækisins þá er allur búnaður óskemmdur og fyrirtækið getur fyrr veitt þjónustu aftur

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um hýsingarlausnir eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links