Kröfur til starfsmanna um þekkingu og hæfni varðandi tölvukerfin sem notuð eru fara sívaxandi. Það er enda eðlilegt þar sem kerfin eru yfirleitt notuð til að ná fram hagræðingu hvort sem hún felst í aukinni skilvirkni, bættri þjónustu eða minni handavinnu og mannaflaþörf.
Ef þekking starfsmanna er ekki sem skyldi þá næst ekki full hagræðing af fjárfestingunni og því er afar mikilvægt að huga að þekkingu starfsmanna, bæði hjá nýliðum en ekki síður hvað varðar endurmenntun reyndari starfsmanna í síbreytilegum tækniheimi.
Starfsfólk Teris hefur áralanga reynslu af námskeiðahaldi fyrir viðskiptavini sína. Hjá Teris starfar fólk sem hefur notað öll kerfi Teris sjálft og tæknimenn sem þekkja möguleika kerfanna í þaula. Þessi heppilega blanda tryggir að starfsmenn viðskiptavina fá þá þekkingu sem þeir leita eftir á námskeiðum hjá fyrirtækinu.
Teris býður bæði uppá stöðluð námskeið og námskeið sem sérsniðin eru að þörfum hvers viðskiptavinar. Námskeiðin eru ýmist haldin í húsnæði viðskiptavinar eða í góðu kennsluumhverf hjá Teris.
Teris býður viðskiptavinum sínum einnig upp á að kenna þeirra viðskiptavinum, hvort sem er með því að fara í heimsóknir til einstakra viðskiptavina eða halda sameiginlegt námskeið fyrir á þá. Sem dæmi má nefna að starfsfólk Teris hefur farið í heimsóknir til fyrirtækja og kennt á Fyrirtækjabankann, en góð þekking starfsmanna fyrirtækja á honum getur aukið skilvirkni til muna.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um námskeiðin okkar eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is