Öll starfsemi Teris byggist á því að veita framúrskarandi þjónustu. Þjónustan sem fyrirtækið veitir er mjög fjölbreytt og víðfeðm og nær m.a. yfir notendaaðstoð, vettvangsþjónustu, kennslu, greiningar, hugbúnaðargerð, gagnaúrvinnslu, rekstur, eftirlit, hýsingu, viðskiptastjórn, vörustjórn, ráðgjöf, aðstoð við val á hug- og vélbúnaði og alls kyns úttektir. Starfsfólk Teris starfar samkvæmt þjónustustefnu sem það tók þátt í að semja og innleiða.
Þjónustustefna Teris
- Við tökum vel á móti viðskiptavinum og sinnum þeim fljótt og vel.
- Við viljum heyra ábendingar, kvartanir og hrós.
- Við sinnum ráðgjöf og finnum viðeigandi lausnir fyrir viðskiptavini.
- Við veitum þjónustu sem byggir á þekkingu og öryggi.
Öryggi í fyrirrúmi
Árið 2006 fékk Teris vottun samkvæmt alþjóðlega ISO/IEC-staðlinum 27001:2005 um stjórnun upplýsingaöryggis. Vottunin nær til allrar starfsemi fyrirtækisins. Vottunin er staðfesting á því að Teris uppfyllir allar kröfur Fjármálaeftirlitsins um rekstur upplýsingatæknikerfa fyrir fjármálafyrirtæki og er um leið mikilvægur þáttur í að efla stöðugt öryggi í meðhöndlum gagna viðskiptavina Teris.
Hýsing og Rekstur
Hjá Teris er rekinn mjög öflugur vélasalur þar sem mikil áhersla er lögð á öryggismál. Rekstur á netum, kerfum og gagnagrunnum, hýsing miðlara, afritunartökur, ásamt almennri þjónustu við kerfi Teris er einn stærsti þátturinn í rekstri fyrirtækisins.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is