Fagleg og óháð ráðgjöf sérfræðinga í upplýsingatækni fyrir fjármálafyrirtæki
Mannauður Teris saman stendur af hópi fólks með mjög mikla þekkingu og fjölbreytta reynslu úr mörgum greinum atvinnulífsins, einkum á sviði fjármálafyrirtækja. Með því að tvinna þekkingu á upplýsingatækni saman við þekkingu á starfsemi fjármálafyrirtækja hefur starfsfólk Teris öðlast mjög góða yfirsýn á þörfum viðskiptavina sinna hvað upplýsingatækni varðar. Þannig hefur Teris skipað sér í fremstu röð sem tæknilegur þjónustuaðili fjármálafyrirtækja. Þessi reynsla gerir það að verkum að Teris er í stakk búið að veita enn fleiri aðilum þjónustu sína.
Teris er því ákjósanlegur samstarfsaðili fyrirtækja þegar kemur að ráðgjöf, þróun hugbúnaðarlausna og reksturs þeirra.
Auk þess að reka kjarnakerfi fyrir fjármálafyrirtæki í öruggu rekstrarumhverfi er Teris með stóra hugbúnaðardeild sem þróar lausnir fyrir fjármálamarkaðinn. Bæði er um að ræða þróun á eigin lausnum Teris sem og aðlögun aðkeyptra kerfa að þörfum viðskiptavina.
Öryggi er skrifað stórum stöfum hjá Teris og er fyrirtækið vottað samkvæmt öryggisstaðlinum ISO/IEC 27001:2005. Þess utan hefur starfsfólk Teris gert öryggisúttektir og tekið þátt í innleiðingu á öryggisstefnu hjá mörgum viðskiptavina sinna og þannig öðlast víðtæka þekkingu og reynslu á því sviði.
Ráðgjöf Teris getur spannað allt svið tæknimála fyrirtækja hvort sem um er að ræða almenna ráðgjöf um tæknimál eða lausnir á sértækum úrlausnarefnum sem upp koma í rekstri fyrirtækja, hvort sem um er að ræða upplýsingakerfi eða rekstrarlausnir.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Ráðgjöf Teris eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is