Vettvangsþjónusta

Hægt er að kaupa sérstaka vettvangsþjónustu sem byggir á heimsóknum til viðskiptavina. Um tvennskonar þjónustu er að ræða, annarsvegar fasta viðveru (ákveðinn tímafjölda í viku/mánuði) eða útkallsþjónustu.

Föst viðvera
Þegar um fasta viðveru er að ræða sinnir tæknimaðurinn verkefnum sem koma upp milli heimsókna auk þess sem hann sinnir fyrirbyggjandi viðhaldi sem getur meðal annars lengt líftíma vélbúnaðar og hámarkað þannig þá fjárfestingu sem honum tengist. Með fastri viðveru öðlast tæknimenn dýrmæta þekkingu á tæknimálum viðskiptavina sem flýtir fyrir úrlausn mála og leiðir til lækkunar á upplýsingatæknikostnaði. Eins og fyrr sagði eykur þetta jafnframt forvarnir þannig að komið er í veg fyrir áföll og vandamál áður þau skella á. Síðast en ekki síst lítur Teris á það sem sérstök forréttindi að fá að vera í jafn nánu samstarfi við viðskiptavini sína og raun ber vitni þegar þessi þjónusta er veitt. Ef til útkalls kemur, þá fá viðskiptavinir sem kaupa þessa þjónustu forgang á aðra viðskiptavini. Þjónustan er veitt gegn mjög sanngjörnu föstu gjaldi til viðskiptavina Teris.

Útkallsþjónusta
Sé seinni leiðin valin, þ.e. útkallsþjónusta, þá getur viðskiptavinurinn kallað tæknimann á staðinn án þess að sérstakir samningar liggi fyrir um það og greitt fyrir það samkvæmt verðskrá Teris hverju sinni. Teris bregst við þessum útköllum eins fljótt og auðið er.

Helstu kostir vettvangsþjónustu eru: 

  • Hagkvæmni í rekstri og þekktur kostnaður
  • Öflugar varnir
  • Einsleitt umhverfi
  • Uppfærsla og útgáfustýring hugbúnaðar
  • Afritun gagnasvæða
  • Lengri líftími vélbúnaðar

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Vettvangsþjónustu Teris, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

 Helstu kostir

  • Föst viðvera tæknimanns
  • Þekkin á umhverfi viðskiptavina
  • Hröð þjónusta
  • Þekktur kostnaður
  • Traust samband
  • Skjótari úrlausnir mála
Skip Navigation Links