Gengisskráning


Gengisskráning
Teris er miðlægt kerfi sem sér um sjálfvirkan útreikning og skráningu gengis erlendra gjaldmiðla. Kerfið er öruggt, einfalt og þægilegt og hentar vel fyrir fjármálafyrirtæki sem vilja halda utan um og skrá sitt eigið gjaldmiðlagengi.
Auðvelt er að breyta og eða bæta við kerfum sem sækja gengni í Gengisskráningu en nú þegar er til staðar tenging við Reiknistofu Bankanna (RB) og flest kerfi sem nýta gengisskráningu í bankaumhverfi.

Einfalt vefviðmót er fyrir starfsfólk viðskiptavinar (yfirleitt starfsfólk fjárstýringar) er hægt að stilla allar breytur í tengslum við útreikninga á gengi. Notendum birtast allar upplýsingar í einni og sömu myndinni. Efst er að finna flipa með öllum þeim gengisflokkum sem verið er að skrá fyrir viðkomandi fyrirtæki. Hver og einn viðskiptavinur getur stýrt því hvaða gengisflokka hann vill að kerfið haldi utan um og skrái.

Hægt er að skrá gengi með mismunandi gildum, eftir mismunandi skilyrðum (tími, hlutfallsleg breyting), með mismunandi álagi (spread) og álagningu (margin). Tenging er við Reuters til að fá rauntímagengi.

Gengisskráningarkerfið er bæði einfalt í notkun og öruggt í rekstri auk þess sem það er auðvelt fyrir nýja aðila að taka kerfið í notkun og innleiða það.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Gengisskráningarkerfið eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links