Gjaldeyrisjöfnuður Teris

Gjaldeyrisjöfnuður er nýjung á Íslandi fyrir fjárstýringu banka og fyrirtækja. Um er að ræða lítið greiningakerfi sem birtir yfirlit yfir allar eignir og skuldir í erlendri mynt sem og heildar greiðsluflæði (e. cash flow) fyrirtækisins. Kerfið hentar fyrir fjárstýringar, fjármálastjóra, fjármáladeildir og þá sem sinna áhættustýringu banka og fyrirtækja. Kerfið hefur slegið í gegn og mikill áhugi er meðal aðila á markaðinum.

Helstu kostir kerfisins eru m.a

  • Öll gögn á einum stað
  • Gagnsæi og rekjanleiki ganga í viðmóti
  • Einsleit gögn – búið er að tryggja að gögn
    úr mörgum og mismunandi kerfum verði
    einsleit og auðvelt sé að vinna með þau
  • Auðvelt er að sækja gögn og birta á þann
    hátt sem óskað er eftir
  • Auðvelt er að bæta við tengingum við ný
    kerfi
  • Viðskiptavinur getur sjálfur stýrt því hvernig
    tegundir hreyfinga eru flokkaðar inn í
    gjaldeyrisjöfnuð


 

Af hverju Gjaldeyrisjöfnuður fyrir fjárstýringu

Með því að sjá á einum stað stöðu eigna og skulda í hverri mynt fyrir sig, ná fyrirtæki að lágmarka tap vegna gengisbreytinga. Þá geta fjárstýringar betur áttað sig á fjármögnun sinni með því að sjá greiðsluflæðið fram í tímann.

Gjaldeyrisjöfnuðurinn er einföld lausn sem byggir á því að gögn hafa verið samræmd og sett á einn stað. Viðmótið er mjög notendavænt og einfalt sem gerir starfsfólki kleift að átta sig strax á þeim breytingum sem hafa átt sér stað. Við þróun og prófanir á lausninni naut Teris liðsinnis starfsfólks viðskiptavina sinna og hefur það skilað sér í mikilli ánægju þeirra sem nota lausnina enda er hún hönnuð með þeirra þarfir í huga.

Af hverju Gjaldeyrisjöfnuður fyrir fyrirtæki

Við höfum fundið fyrir því að Gjaldeyrisjöfnuður er ekki síður fyrir fyrirtæki en fjármálafyrirtæki, banka og sparisjóði.  Eigna og skuldasamsetning fyrirtækja í erlendum myntum getur verið mismunandi og ef röng mynd er á jöfnuðinum þarna á milli getur stórfé tapast ef áhættustýring er ekki skilvirk, gagnsæ og einsleit.

Mikill áhugi hefur myndast fyrir þessari lausn hjá fjármálafyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Gjaldeyrisjöfnuðinn eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

 Umsögn

Ég er mjög ánægður með nýja kerfið frá Teris sem heldur utan um og birtir Gjaldeyrisjöfnuð bankans. Með tilkomu þess höfum við fengið stórbætt yfirlit yfir þau gögn sem mynda jöfnuðinn, en til dæmis er hægt að sprengja upp einstaka línur í jöfnuðinum, alveg niður á grunngögn, auk þess sem við sjáum alltaf aldur gagna á hverjum tíma.

Einar Sigursteinn Bergþórsson, fyrrum Forstöðumaður Fjárstýringar SPB

Skip Navigation Links