IT2 – Fjár- og áhættustýringakerfi

Fjár-og áhættustýringakerfið IT2 er alþjóðlegt kerfi sem þróað hefur verið með tilliti til þarfa fjármálafyrirtækja og fyrirtækja sem hafa sína eigin fjárstýringu.  Kerfið heldur utan um FX, MM, lán, skiptasamninga og fleiri tegundir samninga.  Þá er kerfið STP(Straight through processing), sem þýðir að um leið og samningur hefur verið settur inn í kerfið, myndast greiðsla og færsla yfir í bókhald.

Teris hefur í dag verið að hýsa, reka og þjónusta IT2 fyrir sína viðskiptavini með afbragðsgóðum árangri.

Teris sinnir notendaþjónustu fyrir kerfið, svo sem aðgangsstýringu, kennslu, bilanagreiningu og öðru sem til fellur. Notendaþjónusta Teris er ein sú besta sem völ er á þó víða væri leitað.

Hjá Teris starfa sérfræðingar sem sinna ráðgjöf, greiningu, innleiðingu og skýrslugerð fyrir IT2. Sérstakur hópur innan Teris sinnir þróun tenginga sem þarf til og frá IT2 og er vöktun, viðhald og rekstur þeirra á sama hátt í höndum Teris, sé þess óskað.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um IT2 eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

Skip Navigation Links