Fjár- og áhættustýring

Teris hefur upp á að bjóða fjölmargar lausnir fyrir fjár- og áhættustýringu banka og fyrirtækja enda hafa margir aðilar á því sviði verið lengi í viðskiptum við fyrirtækið.

Mikil áhersla er lögð á að tengja tölvukerfi saman og við ýmsar innlendar og erlendar upplýsingaveitur þannig að kerfin myndi samfellda heild og flæði upplýsinga verði sem best og sjálfvirkast (e. straight through processing). Þessar lausnir eru búnar til af Teris eða aðkeyptar frá þriðja aðila og getur Teris bætt við lausnum eftir þörfum viðskiptavina.

Misjafnt er hvað hentar hverju sinni en leitast er við að vinna að öllum verkefnum í mikilli samvinnu og persónulegum tengslum við viðskiptavini.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um lausnirnar sem tilheyra þessum flokki eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links