Viðskipti á millibankamarkaði eru stunduð í gegnum Reuters 3000 kerfið og það er því mjög mikilvægt kerfi fyrir viðskiptavini Teris. Í Reuters eru upplýsingar um gjaldmiðlagengi(svo sem EUR, USD, GBP DKK) og vaxtagengi(t.d. LIBOR, REIBOR og margt fleira). Þá eru upplýsingar um fréttir af fyrirtækjum(svo sem ársreikningar, mannabreytingar, afkomumarkmið og þess háttar) birtar á Reuters.
Bankar geta svo sent til Reuters upplýsingar svo sem verð á framvirkum samningum, vaxtagengi og svo framvegis.
Reuters server er staðsettur hjá Teris og þaðan er einnig netsamband við útlönd í gegnum gervihnött.
Einnig er notuð Excel tenging sem er tengd við útlönd í gegnum internetið.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Reuters eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is