Innheimtukerfi TERIS er hugbúnaðarlausn sem heldur utan um innheimtur á ýmiskonar kröfum fyrir fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga. Kerfið tengist kröfupotti Reiknistofu bankanna og sér um öll samskipti þar á milli til að tryggja greiðslumiðlun.
Starfsfólk banka og sparisjóða notar kerfið til að stofna og halda utan um kröfur fyrir hönd sinn viðskiptavina, eða eigin kröfur. Með uppsetningu í kerfinu er því stjórnað hvernig kröfur eru flokkaðar og greiðslum vegna þeirra ráðstafað á innlánsreikninga. Innheimtukerfið heldur utan um vanskil og ítrekanir og tengist öðrum kerfum Teris og annarra fyrirtækja sem sjá um vanskilainnheimtu. Þannig skapast heildstæður innheimtuferill allt frá stofnun til greiðslu.
Viðskiptavinir geta einnig sent inn kröfur í gegnum kerfið frá vefbanka eða beint úr bókhaldskerfum sínum. Í fyrirtækjabankanum (vefbanka) er viðmót fyrir fyrirtæki til að hafa heildstættyfirlit yfir kröfur sem eru sendar inn í innheimtukerfið. Berist kröfur úr bókhaldskerfum þá sér kerfið um að senda upplýsingar um greiðslur til baka og þannig geta fyrirtæki fengið greiðsluupplýsingar á rafrænan hátt alla leið inn í bókhaldskerfi sitt.
Innheimtukerfið býður einnig uppá að halda utan um innheimtu á kröfum fyrir félagasamtök og húsfélög. Þá eru settar upp reglur um skiptingu kostnaðar og kerfið sér um að skipta kröfum á milli þátttakenda og innheimta samkvæmt þeirri skiptingu.
Helstu kostir innheimtukerfis:
-
Innsending á kröfum í sameiginlegan kröfupott
-
Kröfur aðgengilegar í öðrum bankastofnunum
-
Yfirlit yfir kröfur í Fyrirtækjabanka (vefbanka)
-
Hægt að greiða kröfur í hvaða banka sem er eða vefbanka
-
Greiðslum ráðstafað á ráðstöfnunarreikninga að vild
-
Innbyggt ítrekunarferli við vanskil
-
Sjálfvirk sending á kröfum til milliinnheimtu
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Innheimtukerfið eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is