Afgreiðslukerfi


Afgreiðslukerfi Teris er hugbúnaðarkerfi sem gerir starfsfólki fjármálafyrirtækja kleift að sinna almennri afgreiðslu s.s. eins og að greiða reikninga, skuldabréf og annað slíkt.  Kerfið heldur utan um peningasjóð fyrir það starfsfólk sem sér um út- og innborganir og aðrar fjárhagslegar færslur.

Helstu aðgerðir sem framkvæmdar eru með afgreiðslukerfinu eru:

  • Greiðsla reikninga og krafna
  • Stofnun og breyting innlánsreikninga s.s. breytingar á vaxtakjörum
  • Millifærslur milli innlánsreikninga
  • Úttekt og innborganir á  innlánsreikninga
  • Uppfletting og fyrirspurnir um stöðu innlánsreikninga
  • Skráning færslna í fjárhagsbókhald
  • Innborganir og úttektir af kredikortum
  • Kaup og sala gjaldeyris
  • Símgreiðslur í erlendri mynt (Swift)

Hægt er að tengja ýmsan jaðarbúnaðir við afgreiðslukerfið, svo sem skrifplötu/kortalesara fyrir viðskiptavin til að kvitta fyrir viðskipti og vistar kerfið undirskrift viðskiptavinar með færslum og því er hægt á auðveldan hátt að kalla fram mynd af undirskriftum á rafrænan hátt.

Afgreiðslukerfið getur einnig tengst OCR lesara til að lesa upplýsingar af bankaskjölum s.s. greiðsluseðlum og þannig er innsláttur upplýsinga lágmarkaður.   Jafnframt tengist kerfið prentara til að prenta út kvittanir til viðskiptavina.

Helstu notendur afgreiðslukerfisins eru:

  • Gjaldkerar – við afgreiðslu viðskiptavina þ.m.t. inn- og útborganir
  • Þjónustufulltrúar – við almenna afgreiðslu viðskiptavina
  • Aðrir starfsmenn – almenn vinnsla

Kerfið tengist Reiknistofu bankanna og sér um öll samskipti er lúta að færslum til annarra bankastofnanna.  Einnig tengist kerfið símgreiðslukerfi sem er gátt inn á  SWIFT netið.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Afgreiðslukerfi Teris eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links