Flexcube - Inn- og útlánalausnir


Flexcube er heildstæð bankalausn sem saman stendur af mörgum einingum þ.m.t. innlánakerfi, útlánakerfi og greiðslukerfi (SWIFT).  Flexcube 7.2 er rauntímakerfi sem hentar bæði viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi. Kerfið býður upp á mikla möguleika og sveigjanleika hvað varðar uppsetningu á vörum, skýrslugerð, o.f l. Flexcube er byggt upp á einingum (module) sem gerir hverjum viðskiptavini kleift að kaupa eingöngu aðgang að þeim einingum sem hann hefur þörf fyrir. Flexcube býður uppá mikla möguleika varðandi aðlögun og notar Oracle gagnagrunn sem er óháður stýrikerfi (t.d. UNIX, LINUX eða WINDOWS).

Innlán:
Innlánakerfi Flexcube heldur utan um fjölbreyttar tegundir innlánsreikninga í þeirri mynt sem við á hverju sinni.  Miklir möguleikar eru á að setja upp sveigjanlegar reiknireglur varðandi vaxtaútreikning, binditíma o.þ.h.  Flexcube inniheldur einnig bókhaldseiningu („General Ledger“) sem allar hreyfingar innan kerfisins eru bókaðar í gegnum.  Möguleiki er að flytja bókahaldsupplýsingar inn í önnur bókahaldskerfi.  Í núverandi uppsetningum af Flexcube eru t.d. upplýsingar fluttar daglega inn í Tamaris bókhaldskerfið hjá RB og því samþættast þessar upplýsingar við aðrar bókhaldsupplýsingar viðkomandi fjármálafyrirtækis.

Útlán:
Útlánakerfi Flexcube getur haldið utan um fjölbreytt lán, bæði inn- og erlend.  Lánin geta verið hvort heldur sem er einnar myntar lán eða myntkörfulán.  Í Flexcube eru settar upp mismunandi „vörur" („Product“) eftir því hvert eðli (vörunnar) lánsins er s.s. kúlulán, jafnar afborganir, jafngreiðslulán o.s.frv.  Lánasamningar eru síðan stofnaðir innan hverrar vöru.  Á líftíma lánasamnings er hægt að gera breytingar sem heimilt er að framkvæma s.s. frysta greiðslur, greiða inná höfuðstól og/eða vexti, skilmálabreyta o.s.frv.
Flexcube tengist við kröfupott RB þ.a. greiðendur geta greitt afborganir í öllum fjármálastofnunum sem hafa aðgang til að greiða kröfur í kröfupotti RB eða í heimabanka, eins og hverja aðra kröfu.

Bókhald:
Flexcube inniheldur fjárhagsbókhald („General Ledger“) sem allar hreyfingar innan kerfisins eru bókaðar í.  Möguleiki er að flytja bókahaldsupplýsingar inn í önnur bókahaldskerfi.  Í núverandi uppsetningum af Flexcube er t.d. upplýsingar fluttar daglega inn í Tamaris bókhaldskerfið hjá RB og því samþættast þessar upplýsingar við aðrar bókhaldsupplýsingar hjá viðkomandi fjármálastofnunum.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Flexcube lausnirnar eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

Skip Navigation Links