Greiðsluþjónusta

Greiðsluþjónustukerfi Teris heldur utan um greiðsluþjónustu fyrir viðskiptavini fjármálafyrirtækja. Kerfið er til í tveimur útfærslum þ.e. sem kerfi sem starfsfólk fjármálafyrirtækja notar og setur upp greiðsluþjónustu fyrir viðskiptavini og sem hluti af Vefbankalausnum Teris þar sem viðskiptavinir afgreiða sig sjálfir og setja upp sína eigin greiðsluþjónustu.  Í báðum lausnum eru settar upp greiðsluáætlanir og skipulagðar greiðslur og tímasetningar þeirra og á þann hátt jöfnuð greiðslubyrgði milli mánaða.

Þegar viðskiptavinur byrjar í greiðsluþjónustu er stofnaður ráðstöfunarreikningur og reglubundið fluttir fjármunir af launareikningi yfir á ráðstöfunarreikninginn.   Settar er reglur um hvernig kröfur eru greiddar af ráðstöfunarreikningunum. Kröfurnar geta verið margskonar, greiðslur af skuldabréfum, sjálfvirkur sparnaður og almennir greiðsluseðlar.  Kerfið vinnur með heimabankanum þ.e. heldur utan um beingreiðslur sem eru skráðar þar og greiðslur sem eru skráðar fram í tímann.

Helstu kostir Greiðsluþjónustunnar  

  • Jöfnun greiðslubyrði
  • Fjármunir fluttir af launareikningi yfir á ráðstöfunarreikning
  • Kröfur greiddar af ráðstöfunarreikningi
    • Skuldabréf
    • Sjálfvirkur sparnaður
    • Almennar kröfur
  • Ítrekaðar greiðslutilarunir ef ónóg innistæða
  • Samningur viðskiptavina um greiðsluáætlun
    • Reglulegar greiðslur
    • Óreglurlegar greiðslur
    • Beingreiðslur

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Greiðsluþjónustukerfið eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links