Kreditskor er lausn sem gerir fjármálafyrirtækjum kleift að greina viðskiptavini sína eftir fyrirfram ákveðnum skilyrðum með það að leiðarljósi að þeir fái eðlilega fyrirgreiðslu miðað við forsendur.
Um er að ræða tvær tegundir skorkorta, annars vegar umsóknarskor og hins vegar hegðunarskor.
Umsóknarskori er ætlað að gefa umsækjendum útlána lánshæfiseinkunn til að aðstoða starfsfólk fjármálafyrirtækja við ákvarðanatöku. Lánshæfiseinkunn er reiknuð út frá forsendum sem upp eru gefnar í umsókninni og byggð á tölfræðilegum samanburði við sögulegar umsóknir.
Hegðunarskori er m.a. ætlað að finna líkur á vanskilum einstaklings í næstu framtíð út frá viðskiptahegðun hans í samanburði við meðaltals hegðun fjöldans í gagnagrunninum. Hegðunarskorið er reiknað út frá hegðun allra viðskiptavina í gagnagrunni.
Tilgangur skorkorta er að minnka áhættu fjármálafyrirtækja vegna útlána. Hægt er að átta sig fyrr á mögulegu útlánatapi vegna greiðsluþrots viðskiptavinar og grípa fyrr til aðgerða til að reyna að koma í veg fyrir tap.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Kreditskor eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is