Millifærslukerfi Teris er einföld veflausn sem gerir starfsfólki fjármálafyrirtækja kleift að framkvæma millifærslur af reikningum viðskiptavina yfir á hvaða aðra reikninga sem er, bæði í eigin kerfum sem og reikningum skráðum hjá Reiknistofu bankanna.
Auk þess að geta millifært á milli innlánsreikninga er hægt að greiða A/B gíró og greiða inn á kreditkort. Hægt er að senda viðtakanda og greiðanda kvittun með tölvupósti beint úr kerfinu. Millifærslukerfið bíður einnig uppá öfluga leit í þegar framkvæmdum millifærslum.
Helstu kostir Millifærslukerfisins:
-
Einfalt viðmót við millifærslu á milli innlánsreikninga, greiðslu gíróseðla og innáborgun á kreditkort
-
Auðvelt að taka gjöld fyrir þjónustu
-
Sendir kvittanir rafrænt eða í bréfpósti
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Millifærslukerfið eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is