Tryggingakerfið er hluti af Spakslausnum Teris. Kerfið heldur utan um útlánatryggingar viðskiptamanna. Kerfið tengist undirliggjandi lánakerfum s.s. kerfum Reiknistofu bankanna, Flexcube og Libru. Þá nýtir kerfið upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins (FMR), Bifreiðaskrá, Skipaskrá og Fiskistofu. Reglulega er virði fasteignatrygginga uppfært, byggt á gögnum frá FMR, og daglega eru uppfærðar tryggingar í skráðum verðbréfum.
Reglur um Basel II
Virðisútreikningur
Tryggingakerfið reiknar út upphæð pr. skuldbindingu sem þarf að binda af eigin fé fjármálafyrirtækisins vegna CAD reglna. Þetta er nákvæmur virðisútreikningur sem reiknar hvert lán hlutfallslega út frá þeirri áhættuvog sem tryggingin lendir í. Útreikningarnir byggjast á CAD-flokki viðskiptavinar (RW), tegund tryggingar og veðhlutfalli (RW), gildistíma heimildar/ábyrgðar (CCF) og hvort viðskiptavinur sé með skráð lánshæfismat frá samþykktu matsfyrirtæki.
Listar
Til eftirlits með gæðum gagna eru listar sem fyrst og fremst eru ætlaðir innra eftirliti og bakvinnslu en þeir geta jafnframt nýst fleirum. Innbyggðir listar þar sem hægt er að hoppa beint úr listanum á réttan stað í kerfinu til að yfirfara/lagfæra skráningar auðvelda jafnframt starfsfólki vinnu sína og minnka hættuna á mistökum.
Helstu kostir Tryggingakerfisins eru:
- Einfalt í notkun
- Býður upp á skráningu og utanumhald trygginga tengdum öllum lánum
- Viðheldur upplýsingum um útlánatryggingar
- Birtir skýra sýn á tryggingar viðskiptamanns
- Vinnusparnaður og hætta á innsláttarvillum lágmarkaður
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Tryggingakerfið eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is