Vanskila- og skuldastöðukerfi

Allar upplýsingar um samninga, skuldabréf, yfirdrátt, kreditkort og víxla á einum stað

Vanskila- og skuldastöðukerfið er hugbúnaðarlausn sem gefur starfsfólki fjármálafyrirtækja heildstætt yfirlit
yfir skuldastöðu einstaklinga og fyrirtækja. Lausnin er öflugt verkfæri til að fylgjast með vanskilum og fylgja eftir
innheimtu á þeim auk þess sem skuldastaða viðskiptavina er aðgengileg á einfaldan hátt.

Upplýsingum úr mörgum áttum safnað saman og þær birtar á einum stað.
Upplýsingar sem kerfið heldur m.a. utan um er tegundir samninga, innlend og erlend skuldabréf, yfirdætti á tékkareikningum, kreditkort og víxla.

Fjölbreyttir möguleikar í boði
Lausnin býður upp á fjölbreytta möguleika til að kalla fram og flokka þessar upplýsingar hvort sem er til að finna
stærstu skuldara eða þá sem eru með mestu vanskilin. Mjög einfalt er síðan að flytja upplýsingar yfir í Excel til
frekari úrvinnslu.

 Helstu aðgerðir

  • Flokkun vanskila og skulda
  • Meðhöndlun ítrekana
    - Heldur utan um ítrekunarsögu
    - Þekkir hvenær á að ítreka og býr til ítrekunarlista
    - Bætir ítrekunargjöldum samkvæmt gjaldskrá við skuldina
    - Býr til viðeigandi ítrekunarbréf
  • Skráning samninga
  • Lögfræðimerking
  • Skráning sérgreindra afskrifta
  • Sendir sjálfvirkt í ytri milliinnheimtu

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Vanskila- og skuldastöðukerfið  eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

 Umsögn

”Vanskilakerfið býður upp á mikla möguleika til þess að nálgast aðgengilegt heildaryfirlit yfir stöðu viðskiptavina, bæði vanskil og skuldir. Kerfið styður frábærlega við vinnubrögð okkar. Það eru allir virkjaðir, allir hafa yfirlit.”

Sigrún Vilbergsdóttir, innheimtustjóri Byrs

Skip Navigation Links