Fjármálakubbar og reiknivélar

Teris býður upp á fjölbreytta fjármálakubba til að birta markaðsgögn og reiknivélar á heimasíðum viðskiptavina sinna.

Fjármálakubbar

Hægt er að velja um mismunandi útfærslu á fjármálakubbum. Möguleiki er t.d. að fá kubba með upplýsingum sem uppfærast sjálfkrafa með reglulegu millibili.

Dæmi um fjármálakubba eru:

  • Markaðsstaðan (hlutabréf, skuldabréf)
  • Mesta hækkun (innan dags, viku, mánuð, ár)
  •  Mesta lækkun (innan dags, viku, mánuð, ár)
  • Mestu viðskipti 
  • Gengi gjaldmiðla
  • Gjaldmiðlakrossar
  • Vísitölur
  • Kauphallarfréttir
  • Viðskiptafréttir
  • Upplýsingar um skráð félög
  • Söguleg þróun á myndrænu formi

Félög á markaði geta fengið tilbúinn fjármálakubb til að birta á heimasíðu sinni með upplýsingum um eigið félag t.d

  • Gengi félags
  • Fjölda viðskipta
  • Veltu
  • Breytingu innan dags
  • Tíma síðustu viðskipta

Reiknivélar

Ýmsar vefreiknivélar eru í boði hjá Teris sem viðskiptavinir geta nýtt sér á heimasíðum, innri vefsvæðum eða innan eigin hugbúnaðarlausna.

Dæmi um reiknivélar:

  • Skuldabréfareiknivél
  • Lánareiknivél
  • Dráttarvaxtareiknivél
  • Sparnaðarreiknivél

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um fjármálakubbana, reiknivélarnar  eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links