Með Genius Excel breytist Microsoft Excel í lifandi greiningarverkfæri fyrir gögn af íslenskum fjármálamarkaði. Hugbúnaðurinn er m.a. í notkun hjá starfsfólki í greiningu, áhættustýringu, verðbréfamiðlun og eignastýringu hjá öllum helstu fjármálafyrirtækjum á Íslandi.
Genius Excel nýtist einnig öðrum aðilum eins og lífeyrissjóðum, tryggingafélögum, opinberum stofnunum, sjóðum sem og fjármáladeildum fyrirtækja.
Sjálfvirk tenging gagna í Microsoft Excel
Með Genius Excel fæst beintenging við fjármálaupplýsingar inn í Microsoft Excel skjöl og þarf því ekki lengur að flytja gögn handvirkt úr öðrum fjármálahugbúnaði yfir í Microsoft Excel til frekari greiningarvinnu.
Markaðsupplýsingar frá NASDAQ OMX Nordic Exchange
Með Genius Excel er hægt að sækja ýmsar rauntíma- og sögulegar upplýsingar frá NASDAQ OMX Nordic Exchange auk fleiri aðila eins og Hagstofu Íslands og Seðlabanka Íslands. Fjölbreyttar upplýsingar um hlutabréf, skuldabréf, vísitölur, gjaldmiðla og ársreikninga skráðra fyrirtækja ásamt ítarlegum grunnupplýsingum um fyrirtækin má finna í Genius Excel.
Helstu kostir Genius Excel
- Helstu markaðsupplýsingar frá NASDAQ OMX Nordic Exchange auk fjölda annarra upplýsingamiðla á einum stað
- Einfalt í uppsetningu og auðvelt í notkun
- Mikill tímasparnaður, aukin afköst og aukinn áreiðanleiki gagna
- Auðveldar yfirsýn og samþættingu fjármálaupplýsinga úr ólíkum áttum
- Auðveldar skýrslugerð og upplýsingagjöf með nýjustu fjármálaupplýsingum
- Lágmarkar innslátt gagna og minnkar villuhættu þar sem ekki þarf að flytja gögn handvirkt inn í Microsoft Excel
- Hægt að uppfæra fjármálalíkön á augabragði
Nánari upplýsingar um áskriftarleiðir er að finna hér.
Genius Excel er fáanlegt í tveimur útgáfum:
- Fyrir Microsoft Office 2007
- Fyrir Microsoft Office 2003 og eldri útgáfur
Tæknilegar kröfur:
- Microsoft Office Excel 2002 eða nýrra
- Windows 98, 2000, XP eða Vista
- Nettenging
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Genius Excel eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is