Verðbréfabanki

Verðbréfabanki Teris er nýjung í sjálfsafgreiðslulausnum sem Teris hefur þróað og hannað í góðu samstarfi við viðskiptavini sína.

Verðbréfabankinn er bylting í sjálfsafgreiðslu og opnar dyr að nýjum heimum fyrir viðskiptavini banka, sparisjóða og verðbréfafyrirtækja. Nú geta viðskiptavinir þessara aðila átt viðskipti í rauntíma á innlendum og erlendum mörkuðum í einföldu og notendavænu umhverfi sem byggir á sama öryggi og notast er við í Heima- og Fyrirtækjabönkum.

Bankinn er aðgengilegur hvar sem er og virkar í öllum helstu vöfrum sem þekktir eru á markaðnum.

Hægt er að sameina vefinn við eigin heimasíðu og tengja við eigin bakvinnslukerfi. Með kerfinu fylgir tenging við Saxess, OMS, LibruVOG, Reiknistofu bankana og gagnaveitu Teris. Einfalt er að bæta við tengingum við fleiri kerfi t.d. aðrar kauphallir, birta stöður á afleiðusamningum eða bæta við fleiri upplýsingaveitum. Teris getur hýst og séð um rekstur á vefnum sé þess óskað og séð um alla aðlögunarvinnu.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Verðbréfabankann eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

 Helstu kostir kerfisins

Öflugar markaðsupplýsingar, bæði seinkaðar og í rauntíma

Notendur geta aðlagað útlit bankans að sínum þörfum

Yfirlit yfir eignasöfn notanda og stöður á samningum

Auðvelt að eiga viðskipti í öruggu umhverfi

Kaup og sala verðbréfa á öllum helstu mörkuðum

Kaup og sala í verðbréfasjóðum sem og skráning í áskrift

Umsóknir á netinu fyrir nýja viðskiptavini og nýjar afurðir

Samþykktir skilmála svo sem MiFID

Auðvelt að setja inn eigið efni og auglýsingar

Fréttir frá innlendum og erlendum fréttaveitum

Markaðsupplýsingar uppfærast sjálfkrafa

 Framtíðarsýn

Stöðugar nýjungar eru í þróun á Verðbréfabankanum til að endurspegla þarfir markaðarins.

Eins geta viðskiptavinir óskað eftir sérverkefnum.

Tengingar við erlendar Kauphallir með FIX

Sjálfsafgreiðsla með skuldabréf

Sjálfsafgreiðsla með afleiðusamninga

Vöktun á hlutabréfum og söfnum

Verðbréfabankinn í símann

Gjaldeyrisviðskipti

Skip Navigation Links