Loki er hugbúnaður sem heldur utan um afleiðusamninga og er sérsniðinn að þörfum íslenskra fjármálafyrirtækja og. Kerfið er mjög einfalt í notkun og tekur uppbygging þess tillit til þarfa hvers og eins viðskiptavinar.
Loki heldur utan um eftirfarandi tegundir afleiðusamninga:
- Framvirkir verðbréfasamningar
- Skiptasamningar með verðbréf
- Framvirkir gjaldmiðlasamningar
Betri yfirsýn yfir stöðu framvirkra samninga og skiptasamninga
Með Loka öðlast starfsmenn betri yfirsýn yfir stöðu afleiðusamninga, og heildarstöðu einstakra viðskiptamanna. Einnig fæst gott yfirlit yfir breytingasögu samninga og bókhaldsútreikninga. Skýrslugerð og upplýsingagjöf til viðskiptamanna og annarra aðila verður því auðveldari og skilvirkari.
Aukið öryggi og umsjón með veðköllum
Loki heldur utan um tryggingastöðu viðskiptamanna og auðveldar til muna umsjón með veðköllum. Hægt er að stofna áhættuflokka og tengja við mismunandi flokka verðbréfa og gjaldmiðlakrossa, auk þess sem sjálfvirkar athuganir auka áreiðanleika upplýsinga.
Helstu kostir afleiðukerfisins Loka:
- Sveigjanleiki – auðvelt að aðlaga að þörfum viðskiptavina
- Einföld og hagkvæm lausn
- Öflug aðgangsstýring sem tryggir öryggi upplýsinga
- Beintenging við fjármálagögn, s.s. gengi gjaldmiðla og hlutabréfa á NASDAQ OMX Nordic Exchange. Einnig er mögulegt að tengja gögn úr eigin kerfum inn í Loka
- Vefkerfi – það eina sem notendur þurfa er vafri á eigin tölvu
- Miðlæg vistun gagna
Hafðu samband í tölvupósti eða í síma 563-3300 fyrir frekari upplýsingar um afleiðusamningakerfið Loka.