Markaðsvaktin er öflugur hugbúnaður sem veitir rauntímaupplýsingar og söguleg gögn frá NASDAQ OMX Nordic Exchange (Norrænu kauphöllinni).
Með Markaðsvaktinni fæst fullkomin yfirsýn yfir tilboð og viðskipti með hlutabréf og skuldabréf í norrænu kauphöllunum. Markaðsvaktin er með fjölda greiningartóla sem hjálpa við ákvarðanatöku til dæmis við kaup eða sölu verðbréfa.
Markaðsvaktin er sérstaklega þróuð með tilliti til þarfa íslenskra notenda og er í útbreiddri notkun hjá fagfólki á íslenskum fjármálamarkaði.
Ný útgáfa af Markaðsvaktinni leit dagsins ljós í lok september síðastliðnum.
Meðal nýjunga eru:
- Ný útgáfa af Markaðsvaktinni leit dagsins ljós í lok september síðastliðnum.
Meðal nýjunga eru:
- Hitakort – Ný þjónusta sem sýnir m.a. á myndrænan hátt hvort íslensk verðbréf (hluta- og skuldabréf) eru að hækka eða lækka og hlutfall veltu ákveðins bréfs í heildarveltu dagsins.
- Íslenskar gjaldmiðlaupplýsingar - Áður var hægt að fá upplýsingar um gengi frá erlendum markaði (aflandsmarkaði) en nú er einnig hægt að fá gengisupplýsingar frá nýjum veitum, Sparisjóðunum og Landsbankanum. Einnig hefur Seðlabankinn verið gerður að sér veitu fyrir gengisupplýsingar.
- Vísitölur meðalgengis – Búið er að bæta við vísitölum meðalgengis frá Seðlabanka Íslands (nýjar gengisvísitölur).
- Vaxtaþjónusta – Ný þjónusta fyrir vexti sem var áður hluti af gjaldmiðlaþjónustunni í Markaðsvaktinni. Um er að ræða IBOR-vexti (Interbank offered rate) s.s. LIBOR, REIBOR, EURIBOR og CIBOR. Hægt er að sjá vextina fyrir mismunandi lánstíma.
- Söguleg gögn fyrir afskráð félög - Notendur geta kallað fram söguleg gögn fyrir félög sem hafa verið afskráð af markaði síðan 2007.
- „Mín síða“ – Hægt er að fá yfirlit yfir þær þjónustur sem notandinn hefur opnar á skjáborði sínu og almennar notenda- og kerfisupplýsingar.
Helstu kostir:
- Fjölbreyttir eiginleikar og aðgerðir í boði
- Einföld uppsetning. Allt sem þarf er nettenging
- Sveigjanlegt og einfalt viðmót sem notendur geta lagað að eigin þörfum
- Hægt að nota hvar sem er; í vinnunni, heima og á ferðalögum
- Einfalt í notkun, hentar bæði fagaðilum og áhugamönnum
- Hagkvæmur kostur miðað við sambærilegan hugbúnað
- Sjálfvirkar uppfærslur á hugbúnaði
- Einfalt að tengja gögn og myndir við Microsoft Word og Microsoft Excel
- Sérsniðið fyrir íslenskan markað. Notendaviðmót á íslensku og ensku
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Markaðsvaktina eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is