Teris býður uppá fjölbreyttar lausnir þegar kemur að gjaldeyris-, hluta- og skuldabréfamörkuðum.
Lausnir þróaðar af Teris eru t.d.
-
GNG: kerfi sem skráir og heldur utanum gengi helstu gjaldmiðla
-
EVS: Erlend Viðskipti: kerfi sem sér um símgreiðslur til útlanda og millifærslur inná og útaf gjaldeyrisreikningum
-
Markaðsvaktin: rauntímaupplýsingar af norrænu OMX mörkuðunum
-
Regluvörður: heldur utan um verðbréfaeign starfsmanna fjármálafyrirtækja
-
Verðbréfabanki: byggður á heimabankagrunni, gerir viðskiptavinum fjármálafyrirtækja kleift að kaupa og selja verðbréf á netinu og sjá yfirlit yfir eignasöfn.
-
Loki: heldur utan um afleiðuviðskipti
Tengingar við lausnir þróaðar annars staðar sem Teris getur hýst og rekið, svo sem
-
Saxess
-
Orc
-
Ideas
-
Libra-Vog
-
Flexcube Securities
Markaðsupplýsingar
Teris býður upp á lausnir fyrir viðskiptavini sem þurfa að nálgast rauntímaupplýsingar og söguleg gögn af fjármálamarkaði, m.a. Markaðsvaktina og Genius Excel fjármálaupplýsingar. Fyrirtæki geta einnig birt þessar upplýsingar á vefsvæðum sínum með tilbúnum Fjármálakubbum eða nálgast þær með vefþjónustum úr Upplýsingaveitu Markaðsgagna.
Lausnirnar eru í notkun hjá helstu fjármálafyrirtæki landsins, lífeyrissjóðum, opinberum aðilum og öðrum sem hafa þörf fyrir aðgang að áreiðanlegum fjármálaupplýsingum. Meðal upplýsinga sem hægt er að nálgast eru: Viðskipti, tilboð, dagslokaverð og ávöxtunarkrafa verðbréfa í NASDAQ OMX Iceland, ásamt upplýsingum um hlutabréfavísitölur
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um lausnir sem falla undir þennan flokk eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is