Regluvörður

Regluvörður er kerfi þróað af Teris sem heldur utan um verðbréfaeign starfsmanna fjármálafyrirtækja.

Kerfið er sérstaklega ætlað fyrir regluverði sem m.a. halda utan um stöðu starfsmanna, persónuupplýsingar, fjárhagslega tengda aðila, eignir og verðbréfaviðskipti starfsmanna, samskipti milli starfsmanna og regluvarða, samþykktar og hafnaðar beiðnir um fjármálagerninga og fleira. 

Hægt er að tengja kerfið við FME til þess að skila skýrslum tengdum innherjum á rafrænan hátt. Þá er hægt að sækja ýmsar tölfræðiupplýsingar úr kerfinu varðandi ofangreind atriði.

Mikil áhersla er lögð á að viðmót starfsmanna, bæði regluvarða og almennra bankastarfsmanna, sé einfalt og þægilegt.

Hægt er að tengja Regluvörðinn við t.d 

  • Bakvinnslukerfi
  • Miðlarakerfi
  • FME

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Regluvörðinn eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links