Teris rekur eina öflugustu upplýsingaveitu landsins og þá einu sem sérhæfir sig í miðlun upplýsinga af íslenskum fjármálamarkaði. Viðskiptavinir okkar nýta meðal annars gögn úr Upplýsingaveitu markaðsgagna til birtingar á ytri eða innri vefsvæðum og til birtingar í eigin upplýsingakerfum.
Markaðsupplýsingar og ársreikningar skráðra félaga
Upplýsingaveita markaðsgagna byggist á þeirri hugmyndafræði að safna saman upplýsingum úr ólíkum áttum, framkvæma ýmsa úrvinnslu og samræmingu á upplýsingunum og dreifa síðan áfram á sjálvirkan hátt, yfirleitt í formi vefþjónusta (e. Web Services). Í Upplýsingaveitu markaðsgagna er m.a. safnað upplýsingum úr viðskiptakerfi NASDAQ OMX Nordic Exchange og úr frétta-, ársreikninga- og fyrirtækjagrunni NASDAQ OMX Nordic Exchange Iceland. Upplýsingaveitan safnar einnig gögnum frá aðilum eins og Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og frá ýmsum erlendum gagnaveitum.
Úr Upplýsingaveitu markaðsgagna er hægt að fá gögn af íslenskum fjármálamarkaði um (bæði. söguleg gögn og rauntímagögn):
- Hlutabréf
- Skuldabréf
- Vísitölur
- Ársreikninga og grunnupplýsingar um skráð félög
- Gjaldmiðla
- Vexti
Upplýsingaveita markaðsgagna dreifir einnig völdum gögnum af norræna markaðnum NASDAQ OMX Nordic Exchange, en til hans teljast kauphallirnar í Helsinki, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
Upplýsingar fyrir heimasíður fyrirtækja og innri vefi
Upplýsingaveita markaðsgagna býður uppá staðlaðar vefþjónustur fyrir birtingu gagna af fjármálamarkaðnum á heimasíðum eða innri vefjum fyrirtækja. Auðvelt er að aðlaga þessar vefþjónustur að þörfum viðskiptavina og bæta við upplýsingum eða gera nýjar vefþjónustur.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Upplýsingaveiturnar eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is