Teris hefur mikla reynslu á sviði upplýsingatækninnar. Í gegnum árin hefur fyrirtækið boðið fjölmörgum fjármálafyrirtækjum upp á heildstæðar lausnir á því sviði.
Lausnir Teris geta falið í sér hugbúnað, ráðgjöf sérfræðinga, aðstoð við innleiðingu kerfa, kennslu og sérvinnslur. Gagnasöfnun og viðskiptagreind er ávallt hluti af lausnum enda gögn oft á tíðum ein verðmætasta eign fyrirtækja og nýting þeirra getur ráðið úrslitum í harðri samkeppni.
Auk þess tekur Teris að sér rekstur lausna enda býður fyrirtækið upp á öfluga rekstrarþjónustu. Þá er í boði notendaþjónustu fyrir þá sem þess óska.
Teris býður upp á heildstæðar lausnir er varða alla þætti upplýsingatækninnar og getur þannig verið upplýsingatæknisvið viðskiptavina sinna. Slík þjónusta hentar vel fyrirtækjum sem vilja einbeita sér að sinni kjarnastarfsemi en útvista upplýsingatæknimálum.
Allar lausnir Teris eru byggar upp með það að markmiði að auðvelt og hagkvæmt sé að bæta inn nýjum fyrirtækjum. Fyllsta öryggis er gætt til að vernda upplýsingar en hagkvæmni samrekstrar kemur viðskiptavinum til góða.
Hér að neðan má sjá tvo af þeim flokkum sem Teris hefur sérhæft sig í þ.e. viðskiptabankalausnir og fjárfestingabankalausnir en auk þess hefur fyrirtækið mikla og góða reynslu í ráðgjafarvinnu og almennri þjónustuveitingu.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um lausnirnar okkar eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is
Starfsemi Teris byggir á þjónustu, þekkingu og öryggi.