Rekstrarlausnir

Rekstrarlausnir Teris eru grunnlausnir fyrir fyrirtæki vegna til dæmis netsambanda, starfsstöðva, tölvupósts,  símkerfis og reksturs á sértækum kerfum.  Rekstur þessara kerfa miðast við að uppfylla alþjóðlega staðalinn ISO/IEC-27001:2005 og reglugerðir vegna MiFID sem eru sértækar fyrir fjármálafyrirtæki.

Þrátt fyrir að rekstrarumhverfi og umgjörð rekstrarlausna miðist fyrst og fremst við starfssemi fjármálafyrirtækja þá geta þjónustuþættir rekstrarlausna hentað vel fyrirtækjum sem sækjast eftir öruggu umhverfi fyrir sína starfssemi. 

Teris hefur mikla reynslu af öryggisúttektum er varða upplýsingartækni og viðskiptavinum stendur til boða öryggisúttektir allt frá úttekt á einstökum kerfum til úttekta á heildarstarfssemi.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um lausnir sem falla undir þennan flokk  eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links