Sjálfsafgreiðsla í fjármálaþjónustu hefur vaxið ört undanfarin ár enda mikið hagræði af slíkri þjónustu bæði fyrir fjármálafyrirtæki og ekki síður fyrir viðskiptavinina sjálfa.
Hjá Teris eru í boði öflugar sjálfsafgreiðslulausnir sem auðvelt er að aðlaga að þörfum hvers fjármálafyrirtækis. Í þróun sjálfsafgreiðslulausna er markvisst unnið að heilsteyptum lausnum þar sem markmiðið er samþætting opinna vefsvæða, vefsvæða þar sem viðskiptavinur þarf að auðkenna sig á öruggan hátt, verkferla og lausna sem halda utan um öll tengsl við viðskiptavininn.
Nauðsynlegt er að huga vel að öryggi í rekstri sjálfsafgreiðslulausna. Í Teris er að finna öflugt umhverfi og ferla sem fylgja ströngum öryggiskröfum.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um lausnir sem falla undir þennan flokk eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is