Viðskiptagreind

Teris hefur um árabil byggt upp gríðarlega þekkingu í viðskiptagreind (e. Business Intelligence) og gagnagreiningu (e. Data Analysis). Árangurinn af þessari uppbyggingu er sá að fyrirtækið hefur yfir að ráða afburða sérfræðingum á þessu sviði sem hafa getað veitt viðskiptavinum Teris framúrskarandi þjónustu í flóknum verkefnum sem einkenna fjármálamarkaðinn.

Með viðskiptagreind (e.Business Intelligence) er átt við öll þau verkferli, gagnavinnslur og tól sem hafa það sameiginlega markmið að ná sem bestum upplýsingum úr gögnum viðskiptavina Teris á sem öruggastan og einfaldastan hátt.

Innan viðskiptagreindar hjá Teris er áhersla lögð á gæðastýringu gagna, allt frá móttöku gagna frá upprunakerfi til samþættingar og frá samþættingu til birtingar gagna gagnvart notendum. Til þess að tryggja rekjanleika og almennt rekstraröryggi er mikilvægi skjölunar og skilgreindra gagnaviðmóta á milli einstaka kerfa í hávegum haft á öllum stigum gagnameðhöndlunar.

Samstarfsaðili SAS Institute

Teris er samstarfsaðili SAS Institute og hefur undanfarin ár unnið með vöruhús gagna sem byggir á módeli SAS Institute fyrir fjármálafyrirtæki. Vöruhúsamódelið einfaldar til muna samþættingu gagna fjármálafyrirtækja auk þess sem SAS Institute býður margar lausnir, sérhannaðar fyrir starfsemi fjármálafyrirtækja, beint ofan á vöruhúsið.

Genius Server

Teris býður einnig upp á Genius Server, hugbúnaðarkerfi sem auðveldar samþættingu upplýsingakerfa á einfaldan og hagkvæman hátt. Genius Server er einfalt og hagkvæmt þróunar- og rekstrartól fyrir vefþjónustur sem styður þjónustumiðaða högun. Notkun Genius Server útrýmir tímafrekri og kostnaðarsamri smíði vefþjónusta, styttir þróunartíma og lækkar um leið flækjustig og eykur hagkvæmni. Samþætt gögn frá vefþjónustum unnum í Genius Server má svo nálgast á einfaldan hátt í gegnum Genius Excel sem getur þannig breytt Excel í lifandi greiningarverkfæri.
Sjá nánar
Genius Server

Gagnagreining (e. Data Analysis)

Með skipulagðri uppbyggingu gagnaumhverfis hefur Teris náð fram aukinni rekstrarhagræðingu og þar af leiðandi bættri þjónustu gagnvart viðskiptavinum. Viðskiptavinir Teris geta nýtt sér aðgengi að gagnaumhverfi Teris í gegnum Gagnagreiningu Teris sem hefur á að skipa hópi sérfræðinga sem búa að víðtækri reynslu og þekkingu á sviði gagnagreiningar.
Sjá nánar
Gagnagreining

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um lausnir sem falla undir þennan flokk eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links