Viðskiptatengsl

Mikilvægi þess að halda vel utan um viðskiptavini og samskipti við þá hefur aldrei verið mikilvægara en undanfarið.  Ytra umhverfi hefur breyst mjög mikið, samkeppni aukist til muna auk þess sem breytingar eru sífellt að verða algengari hjá fólki og fyrirtækjum.   Stjórnun viðskiptatengsla (CRM) og utanumhald utan um viðskiptvini, samskipti  og 360° sýn á stöðu þeirra skiptir því lykilmáli í dag.  Hjá Teris hefur þetta sjónarmið verið haft að leiðarljósi við þróun okkar „CRM lausna“.

Þekking á starfsemi fjármálafyrirtækja er mjög mikil hjá Teris og eru þær kröfur og þarfir sem fjármálageirinn hefur til lausna ávallt hafðar að leiðarljósi við hönnun og þróun lausnanna, sérstaklega er tekið tilliti til upplýsingaskyldu, rekjanleika, aðgangs og öryggis sem þessi fyrirtæki verða að hafa í sínum rekstri.

Spakur,  viðskiptavina- og verkferlakerfi Teris, er eitt af flaggskipum fyrirtækisins.  Við þróun Spaks er unnið markvisst að því að samþætta einingarnar við önnur kerfi þannig að það skapi heildstæða lausn fyrir viðskiptavininn þar sem nálgast má með einföldum hætti þær lykilupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta veitt góða þjónustu.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Viðskiptatenglsalausnir eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       
Skip Navigation Links