Teris fékk vottun á alla starfsemi sína samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO/IEC 27001:2005 um stjórnun upplýsingaöryggis í júní 2006. Vottunin var endurnýjuð á árinu 2009. Vottunin staðfestir að í Teris er unnið samkvæmt stjórnkerfi upplýsingaöryggis í samræmi við staðalinn.
Þar sem Teris þróar, rekur, þjónustar og hýsir upplýsingakerfi fyrir m.a. fjármálafyrirtæki, gera stjórnendur og starfsmenn fyrirtækisins sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda viðkvæm gögn og upplýsingar. Starfsfólk Teris er því meðvitað um þær ógnir sem mögulega steðja að upplýsingunum og upplýsingakerfum og vinnur kerfisbundið við að bregðast við þeim.
Vottunaraðili Teris er KPMG Audit Plc í Bretlandi Englandi. Samningurinn felur í sér að úttekt er framkvæmd á sex mánaða fresti út þann tíma sem vottunin nær yfir.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Vottun Teris, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is