Saga fyrirtækisins


Forveri Teris, Tölvumiðstöð sparisjóðanna, var stofnuð í mars 1989. Stofnendur voru sex af stærstu sparisjóðum landsins og Lánastofnun sparisjóðanna, sem nú heitir Sparisjóðabanki Íslands. Fljótlega gengu aðrir sparisjóðir inn í samstarfið.

Í upphafi þjónaði Tölvumiðstöðin eingöngu hlutverki tölvudeildar sparisjóðanna. Smám saman fjölgaði eigendum, fleiri fjármálafyrirtæki bættust í hópinn og fyrirtækið stækkaði.
Árið 2002 var fyrirtækinu mörkuð ný stefna þar sem ákveðið var að bjóða lausnir fyrirtækisins út fyrir eigendahópinn í kjölfarið fjölgaði viðskiptavinum.

Í mars 2007 var nafni fyrirtækisins breytt í Teris.

 

 

Skip Navigation Links