Teris er framsækið upplýsingatæknifyrirtæki sem veitir framúrskarandi þjónustu við fyrirtæki á fjármálamarkaði og við fjármálatengdar lausnir.
Starfsemi Teris byggir á þekkingu á rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og áralangri reynslu við að nýta sömu lausnir fyrir marga viðskiptavini samtímis. Ráðgjöf, samþætting og smíði heildstæðra lausna er stór hluti af starfsemi Teris. Við byggjum þjónustuna á sveigjanleika, öryggi og persónulegum tengslum. Í starfseminni er lögð mikil áhersla á þjónustu, þekkingu og öryggi.
Meginmarkmið Teris eru að:
- Teris sé leiðandi fyrirtæki á sínu sviði og góður fjárfestingarkostur
- Það sé gott að eiga viðskipti við Teris
- Það sé gott að vinna hjá Teris
- Starfsemi Teris sé skilvirk, hröð og hagkvæm
Gildi Teris eru:
- Þjónusta - Teris er upplýsingafyrirtæki sem veitir framúrskarandi þjónustu. Við leggjum mikla áherslu á hraða og faglega ráðgjöf en gleymum aldrei að öryggi upplýsinga þarf ætíð að vera til staðar.
- Þekking - Þekking starfsmanna er helsta auðlind Teris. Markviss endurmenntun og þjálfun starfsfólks eru hluti af því að viðhalda og ekki síður bæta þekkingu starfsfólksins. Teris leggur metnað sinn í að starfsfólkið geti uppfyllt þær kröfur sem til þess eru gerðar.
- Öryggi - Öryggi í allri okkar starfssemi grundvallast á trausti, trúnaði og tryggð gagnvart viðskiptavinum. Öryggið er hornsteinn í rekstri Teris og skapar fyrirtækinu sérstöðu á markaði.
Þjónustustefna Teris
- Við tökum vel á móti viðskiptavinum og sinnum þeim fljótt og vel.
- Við viljum heyra ábendingar, kvartanir og hrós.
- Við sinnum ráðgjöf og finnum viðeigandi lausnir fyrir viðskiptavini.
- Við veitum þjónustu sem byggir á þekkingu og öryggi.
Starfsemi Teris byggir á þjónustu, þekkingu og öryggi.