Notendaþjónusta Teris er gríðarlega vel mönnuð, þarf starfa sérfræðingar sem hafa víðtæka reynslu og þekkingu úr fjármálageiranum. Samanlögð reynsla sérfræðinga Notendaþjónustu er um 150 ár. Þessi mikla reynsla og þekking á umhverfi og kerfum viðskiptavina gerir Teris kleift að veita bestu mögulegu þjónustu sem í boði er. Teris hefur leitast eftir að fá starfsfólk fjármálafyrirtækja til starfa hjá Notendaþjónustu en flestir sérfræðingar Teris hafa sjálfir verið notendur að okkar kerfum innan fjármálageirans áður en hófu störf hjá Notendaþjónustu.
Menntun starfsfólks er fjölbreytt en á meðal þess eru einstaklingar með próf í viðskiptafræði, kerfisfræði, sálfræði, kennslufræðum auk aðila sem hafa hlotið Microsoft gráður.
Hjá Teris er fyllsta öryggis gætt varðandi allar upplýsingar sem fyrirtækinu berast. Það er unnið eftir stöðluðum þjónustuferlum og vottuðu öryggisstjórnkerfi, með því er viðskiptavinum tryggð fljótusta og skilvirkusta þjónusta sem völ er á. Þá er öll meðhöndlum gagna með áherslu á upplýsingaöryggi og þá staðla sem fyrirtækið starfar eftir.
Allar þjónustu- og verkbeiðnir sem berast Teris eru skráðar í verkbeiðnakerfi fyrirtækisins þar sem þær fá einkvæmt verknúmer. Viðskiptavinir geta hringt á opnunartíma og kannað stöðu sinna mála en einnig er hægt að sjá yfirlit og stöðu allra beiðna á vef verkbeiðnakerfisins. Nákvæm skráning allra beiðna tryggir skipulega úrlausn og rétta forgangsröðun. Einnig er tryggt að nauðsynlegar upplýsingar fylgi hverri beiðni þegar hún er færð á milli hópa innan Teris.
Starfsfólk Notendaþjónustu leggur mikið upp úr góðri þjónustu, viðbragðsflýti, öryggi og faglegum vinnubrögðum. Það er því fátt sem gleður okkur jafnmikið og þegar viðskiptavinir Teris láta vita að þeir séu ánægðir með þá þjónustu sem fyrirtækið veitir en ekki síður þegar þeir sjá tækifæri sem gera starfsfólki kleift að gera betur.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Notendaþjónustu Teris, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is