Teris býður upp á Viðskiptabankalausnir sem í megin atriðum skiptast í eftirtalda flokka:
Inn- og útlán
Stór hluti af kjarnastarfsemi fjármálafyrirtækja snýst um inn- og útlán. Teris hefur um árabil rekið og veitt þjónusutu við inn- og útlánakerfið Flexcube frá Oracle Financial Solutions sem er eitt af öflugustu fyrirtækjum í heimi á sviði fjármálalausna. Kerfi Flexcube eru mjög sveigjanleg og bjóða upp að ótal möguelika á útfærslum útlána og innlánareikninga. Teris hefur þróað tengingar úr kerfinu til að aðlaga það íslensku fjármálaumhverfi.
Einnig eru í boði ýmsar lausnir sem styðja við inn- og útlánastarfsemi. Má þar nefna mismunandi afgreiðslulausnir, Útlánatryggingakerfi Teris, Greiðsluþjónustu, Innheimtukerfi og Skuldastöðu- og vanskilakerfi.
Viðskiptatengsl
Mikilvægi þess að halda vel utanum viðskiptavini og samskipti við þá hefur sennilega aldrei verið mikilvægara en undanfarin ár. Ytra umhverfi einstaklinga og fyrirtækja hefur breyst mjög mikið á undanförnum misserum. Stjórnun viðskiptatengsla (CRM) og utanumhald utan um viðskiptvini, samskipti og 360° sýn á stöðu þeirra skiptir lykilmáli í dag. Við hjá Teris höfum haft þetta að leiðarljósi við þróun okkar „CRM lausna“ og leggur viðskiptatengslahópur Teris sig fram við að skilja þarfir viðskiptavina.
Þekking á starfsemi fjármálafyrirtækja er mjög mikil hjá Teris og er ávallt haft í huga þær þarfir sem fjármálageirinn gerir til sinna lausna með tilliti til upplýsingaskildu, rekjanleika, aðgangs og öryggis.
Spakur, viðskiptatengsla- og verkferlakerfi Teris, er eitt af flaggskipum fyrirtækisins. Við þróun Spaks er unnið markvisst að því að samþætta einingarnar við önnur kerfi þannig að það skapi heildstæða lausn fyrir viðskiptavininn.
Sjálfsafgreiðsla
Sjálfsafgreiðsla í fjármálaþjónustu hefur vaxið ört undanfarin ár enda mikið hagræði af slíkri þjónustu bæði fyrir fjármálafyrirtæki og ekki síður fyrir viðskiptavinina sjálfa.
Hjá Teris eru í boði öflugar sjálfsafgreiðslulausnir sem auðvelt er að aðlaga að þörfum hvers fjármálafyrirtækis. Við þróun sjálfsafgreiðslulausna er markvisst unnið að heilsteyptum lausnum þar sem markmiðið er samþætting opinna vefsvæða, vefsvæða þar sem viðskiptavinur þarf að auðkenna sig á öruggan hátt, verkferla og lausna sem halda utan um öll tengsl við viðskiptavininn.
Kortalausnir
Kortalausnir Teris bjóða upp á lausnir fyrir notkun á kredit- og debet kortum. Um er að ræða lausnir sem styðja og útvíkka notkunarmöguleika kortanna og greiningu þeirra gagna sem verða til við notkun þeirra. Sem dæmi má nefna, vildarkerfi fyrir kredit- og debetkort, greining á neysluhegðun o.fl.
Rekstrarlausnir
Undirstaðan að allri upplýsingatækni er grunnnetið, póstkerfið, símkerfið og síðast en ekki síst sjálfar starfsstöðvarnar en þetta köllum við einu nafni Rekstrarlausnir. Til að allt virki sem eins og til er ætlast og tölvukerfin okkar séu til taks þegar á þarf að halda þá þurfa þessir hlutir að vera í lagi. Við höfum starfandi hjá okkur nokkra af færustu sérfræðingum landsins á þessu sviði sem tryggja þennan grunn. Undirliggjandi tækni verður sífellt flóknari og því er nauðsynlegt að þekking sé til staðar þannig að halda megi undirstöðunum traustum.
Ef frekari upplýsinga er óskað, þá sláið á þráðinn í síma 563 3300 eða sendið okkur línu á tölvupóstfangið teris[at]teris.is