Erlend viðskipti (EVS) er miðlægt kerfi sem heldur utan um öll almenn erlend viðskipti með gjaldeyri, svo sem símgreiðslur (SWIFT) og kaup og sölu gjaldeyris.
Viðmót við EVS er í gegnum eftirtalin kerfi:

Helstu eiginleikar EVS:
· Allar upplýsingar varðandi greiðslur eru lesnar úr Heimabanka eða Afgreiðslukerfi og sendar inn í bakvinnslukerfi á sjálfvirkan og rafrænan hátt.
· Viðskiptavinur getur sjálfur fylgst með framvindu mála og séð þegar greiðslan er farin frá bankanum.
· Viðskiptavinur getur beðið um að staðfesting verði send með tölvupósti/SMS og fer kvittunin sjálfkrafa til viðkomandi aðila þegar búið er að afgreiða greiðsluna.
· Viðskiptavinur getur fengið yfirlit yfir sendar greiðslur; fyrir hvern viðtakanda, mynt eða tímabil, sundurliðað og samtölur. Viðskiptavinur getur einnig stofnað greiðslur fram í tímann.
· Kerfið er tengt við IG kerfi RB (gjaldeyrisreikningar) þannig að hægt er að skuldfæra IG reikning í sömu mynt og greiðslan er.
· Bankatafla með IBAN númerum er geymd í kerfinu og uppfærð reglulega.
· Þá er greiðslukerfið tengt við gengisskráningarkerfi Teris (GNG) þannig að viðskiptavinur fær alltaf nýjasta gengið.
· Mögulegt er að skrá sérkjör fyrir ákveðna viðskiptavini eða skilgreinda hópa. Hægt er að skrá sérkjör fyrir hverja mynt og hafa þau upphæðatengd.
· Greiðslukerfið er tengt við gjaldtökukerfi Teris þannig að við sendingu greiðslunnar þá verður viðskiptavinurinn rukkaður jafnóðum og fyrir þá þjónustu sem hann biður um.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um EVS lausnina eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is