Genius Excel veitir beinan aðgang að fjármálaupplýsingum frá m.a. NASDAQ OMX Nordic Exchange (Iceland, Stockholm, Copenhagen, Helsinki), Hagstofu Íslands og Seðlabanka Íslands.
Dæmi um markaðsupplýsingar í Genius Excel:
- Söguleg gögn og rauntímagögn af fjármálamarkaði
- Dagslokaverð norrænna hlutabréfa
- Ávöxtunarkrafa íslenskra skuldabréfa
- Vísitölur (t.d. OMXI15, OMXN40, neyslu-, launa- og lánskjaravísitala, gengisvísitala krónunnar)
- Gengi gjaldmiðla og gjaldmiðlakrossar
- Millibankavextir (t.d. LIBOR, REIBOR, EURIBOR, CIBOR og SWAP)
- Ársreikningar og ítarlegar grunnupplýsingar um skráð fyrirtæki (stjórn, yfirlit yfir 20 stærstu hluthafa og þróun eignarhluta)
- Ýmis útreikningsföll m.a. fyrir ávöxtunarkröfu skuldabréfa, framvirka skuldabréfasamninga, vaxtakúrfur og valrétti
Fjölbreytt úrval áskriftarpakka er í boði.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Genius Excel eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is