Helstu eiginleikar og aðgerðir Markaðsvaktarinnar


Notendur geta valið úr fjölbreyttum aðgerðum og þjónustu sem gerir Markaðsvaktina að öflugu greiningartóli fyrir jafnt fagaðila sem áhugamenn.

Á meðal helstu eiginleika og aðgerða má nefna:

  • Markaðsupplýsingar í rauntíma s.s. verðbréfayfirlit, viðskiptayfirlit, vísitölur, gengisþróun, gjaldmiðlar og markaðsfréttir
  • Tilboðagreining og tilboðayfirlit
  • Öflugt fréttakerfi þar sem notendur geta sjálfir bætt við fleiri fréttaveitum
  • Söguleg gögn og dagslokaverð
  • Greiningartól, nærri 50 mismunandi greiningaraðferðir
  • Yfirlit verðbréfasafna og einföld uppsetning á eigin verðbréfasöfnum
  • Vöktun á verðbréfum og markaðnum með tölvupósti eða SMS
  • Lána-, skuldabréfa- og vísitölureiknivélar
  • Strimill  sem birtir upplýsingar um öll viðskipti, tilboð og fréttir
  • Skipting á kaup- og söluaðilum fyrir einstök verðbréfasöfn og verðbréf
  • Upplýsingar um einstök félög, s.s. uppgjör og yfirlit yfir 20 stærstu hluthafa og þróun eignarhluta þeirra á tilteknu tímabili.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Markaðsvaktina  eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

 

Skip Navigation Links