Hér má finna svör við algengum spurningum í tengslum við notkun Markaðsvaktarinnar. Ítarlegri leiðbeiningar má finna á hjálparvef Markaðsvaktarinnar með því að smella hér.
Hvernig sæki ég Markaðsvaktina og hleð inn á tölvuna mína?
Þú getur sótt uppsetningarskrá Markaðsvaktarinnar með því að smella hér. Þú vistar skrána á harða disknum á tölvunni þinni og ræsir hana svo þegar niðurhali er lokið. Uppsetningarforritið leiðir þig svo í gegnum uppsetningarferlið. Til þess að geta skráð þig inn í Markaðsvaktina verður þú að hafa sótt um aðgang hér.
Hvaða markaðsupplýsingum er Markaðsvaktin að miðla?
Markaðsvaktin miðlar bæði sögulegum gögnum og rauntímagögnum frá NASDAQ OMX Nordic Exchange sem íslenska kauphöllin er hluti af. Um er að ræða ýmsar upplýsingar um hlutabréf, skuldabréf og vísitölur s.s. viðskipti, tilboð, dagslokaverð hlutabréfa og ávöxtunarkröfu skuldabréfa . Þá eru ítarlegar upplýsingar um félög á íslenska markaðnum s.s. um ársreikninga, stjórn og aðgerðir félaganna (e. corporate action).
Markaðsvaktin er miðlar einnig upplýsingum frá öðrum leiðandi upplýsingamiðlum m.a. um gengi gjaldmiðla, gjaldmiðlakrossa, millibankavexti og markaðsfréttir.
Hverjir nota Markaðsvaktina?
Notendur Markaðsvaktarinnar eru starfsmenn fjármálafyrirtækja s.s. miðlarar, aðilar í eignastýringu, greiningu og áhættustýringu. Aðrir notendur eru t.d. fjármálastjórar fyrirtækja, ráðgjafar, fagfjárfestar og áhugamenn.
Hvaðan koma gögnin í Markaðsvaktinni?
Markaðsvaktin er beintengd við Saxess viðskiptakerfi NASDAQ OMX Nordic Exchange ásamt öðrum leiðandi upplýsingamiðlum.
Er flókið að setja Markaðsvaktina upp?
Það er mjög einfalt að setja upp Markaðsvaktina. Allt sem þarf er Windows stýrikerfi (2000, XP eða Vista) og hefðbundin Internettenging. Uppsetningin sjálf tekur innan við 5 mínútur. Þú getur sótt uppsetningarskrá Markaðsvaktarinnar hér.Til þess að geta skráð þig inn í Markaðsvaktina verður þú að hafa sótt um aðgang hér.
Get ég haft Markaðsvaktina á fleiri en einni tölvu í einu?
Notendur geta sett upp Markaðsvaktina á hvaða tölvu sem er með Windows stýrikerfi og hefðbundna Internettengingu. Ef notandi er skráður inn í Markaðsvaktina í tölvu og skráir sig með sama notendanafni í Markaðsvaktina á annarri tölvu þá lokast fyrri aðgangur að Markaðsvaktinni.
Get ég notað Markaðsvaktina á Apple tölvu?
Já, en svo Markaðsvaktin virki á Apple tölvum þurfa þær að keyra Windows stýrikerfið í stað Mac Os. Slíkt er mögulegt á nýrri gerðum Apple tölva. Á vefsíðu Apple má nálgast nánari upplýsingar um hvernig hægt er að keyra Windows stýrikerfið á Apple vélum, sjá http://apple.is/windows/
Er Markaðsvaktin bara til á íslensku?
Nei, notendur geta sjálfir valið í valmynd hvort viðmót Markaðsvaktarinnar sé á íslensku eða ensku.