Netkerfi Teris er gríðarlega öflugt og byggir það meðal annars á víðtæku ljósleiðaraneti auk allra bestu sambanda sem völ er á. Teris sér um allar nettengingar viðskiptavina sinna, hvort sem um er að ræða tengingar við internetið eða við gagnaveitur þriðja aðila s.s. eins og Reiknistofu bankanna, CreditInfo eða annara sambærilegra aðila. Auk þessa sér Teris um allar varnir á netinu en margar ógnir steðja að netkerfum á degi hverjum. Netkerfi Teris er þannig uppbyggt að það er tvöfalt þannig að rekstraröryggi er eins og best verður á kosið. Rekstur netkerfisins er eins og annað í rekstri Teris vottaður samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO/IEC 27001:2005 um stjórnun upplýsingaöryggis.
Helstu kostir þess að vera með rekstur netkerfis hjá Teris:
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Netkerfi Teris eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is