Starfsstöð / útstöð

Starfsstöðvaþjónusta Teris nær meðal annars til þess að uppfæra þann hugbúnað sem nauðsynlegur er á hverri útstöð og þeim netþjónum sem eru í umsjón, rekstri og hýsingu auk þess að viðhalda veiru- og fjöldapóstvörnum á netþjónum og útstöðvum. Þjónusta Teris er umfangsmikil á þessu sviði og nær m.a. til ráðgjafar varðandi kaup á PC vélum, gerð staðlaðar uppsetningar á stýrikerfi véla og hugbúnaðar, umsýslu vegna uppfærslna, aðgangsstýringa og bilana og uppsetninga á gagnasvæðum viðskiptavina.

Microsoft leyfi og annar hugbúnaður
Teris býður uppá ráðgjöf og milligöngu um kaup á hugbúnaði til að mynda frá Microsoft og öðrum framleiðendum. Við slíka millingöngu sér Teris um allt er lítur að uppsetningu, uppfærslum og viðbótum á viðkomandi hugbúnaði auk þess sem samningagerð og öll samskipti við birgjann er í höndum fyrirtækisins.

Vettvangsþjónusta - Starfsstöðvaþjónusta

Hægt er að kaupa sérstaka vettvangsþjónustu sem byggir á heimsóknum til viðskiptavina. Um tvennskonar þjónustu er að ræða, annarsvegar fasta viðveru ákveðinn tímafjölda í viku/mánuði eða útkallsþjónustu.

Föst viðvera
Þegar um fasta viðveru er að ræða sinnir tæknimaðurinn verkefnum sem koma upp milli heimsókna auk þess sem hann sinnir fyrirbyggjandi viðhaldi sem getur meðal annars lengt líftíma vélbúnaðar og hámarkað þannig þá fjárfestingu sem honum tengist. Með fastri viðveru öðlast tæknimenn dýrmæta þekkingu á tæknimálum viðskiptavina sem flýtir fyrir úrlausn mála og leiðir til lækkunar á upplýsingatæknikostnaði. Eins og fyrr sagði eykur þetta jafnframt forvarnir þannig að komið er í veg fyrir áföll og vandamál áður þau skella á. Síðast en ekki síst lítur Teris á það sem sérstök forréttindi að fá að vera í jafn nánu samstarfi við viðskiptavini sína og raun ber vitni í þegar þessi þjónusta er veitt. Ef til útkalls kemur, þá fá viðskiptavinir sem kaupa þessa þjónustu forgang á aðra viðskiptavini. Þjónustan er veitt gegn mjög sanngjörnu föstu gjaldi til viðskiptavina Teris.

Útkallsþjónusta
Sé seinni leiðin valin, þ.e. útkallsþjónusta, þá getur viðskiptavinurinn kallað tæknimanninn á staðinn án þess að sérstakir samningar liggi fyrir um það og greitt fyrir það samkvæmt verðskrá Teris hverju sinni. Teris bregst við þessum útköllum eins fljótt og auðið er.

Helstu kostir starfsstöðvaþjónustunnar: 

  • Hagkvæmni í rekstri og þekktur kostnaður
  • Öflugar varnir
  • Einsleitt umhverfi
  • Uppfærsla og útgáfustýring hugbúnaðar
  • Uppfærslur hugbúnaðar
  • Afritun gangasvæða
  • Lengri líftími vélbúnaðar

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Starfsstöðvarnar eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       

 Helstu kostir

  • Hagkvæmni í rekstri
  • Öflugar varnir
  • Einsleitt umhverfi
  • Uppfærsla og útgáfustýring hugbúnaðar
  • Uppfærslur hugbúnaðar
  • Afritun gangasvæða
Skip Navigation Links