Teris býður upp á handhæga leið til að stofna og meðhöndla kröfur og sækja bankaupplýsingar beint úr bókhaldskerfum og öðrum kerfum af svipuðum toga. Lausnin byggir á íslenskum sambankastaðli (IOBS - samræmdar vefþjónustur) , sem tekinn var í notkun árið 2007 og hefur einfaldað til muna samskipti bókhaldskerfa fyrirtækja við kerfi fjármálafyrirtækja.
Lausnin notar XML skeytasendingar og samræmdur staðallinn veldur því að viðmót gagnvart fjármálafyrirtækinu er alltaf eins, óháð því hvaða fjármálafyrirtæki á í hlut og ekki þarf að nota vefbanka sem millilið. Öll samskipti eru beint milli bókhaldskerfis fyrirtækis og kerfa bankanna.
Meðal helstu aðgerða má nefna:
Og að fá upplýsingar um:
-
stöðu á vinnslu
-
kröfur
-
greiðslur inn á kröfu
-
stöðu á vinnslu
-
kröfur
-
greiðslur inn á kröfu
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að nota beintenginguna gera samning við viðskiptabanka sinn en Teris sér um að afhenda leiðbeiningar og prófunarforrit fyrir þá sem vilja nýta staðalinn í kerfi sín.
Notkun beintengingar úr fjárhagskerfum býður upp á ótvírætt hagræði fyrir þau fyrirtæki sem eru með töluvert færslumagn.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um IOBS lausnina eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is