
Í Teris eru sérfræðingar sem hafa sérhæft sig í MOSS lausnum Microsoft.
Microsoft Office SharePoint Server 2007 (MOSS 2007) er hugbúnaður frá Microsoft sem býður upp á mikla möguleika fyrir innri vefi á sviði samþættingar við upplýsingakerfi, stjórnun verkferla, miðlun upplýsinga og hópvinnu. SharePoint vinnur gríðarlega vel með Microsoft Office 2007 hugbúnaði eins og t.d. Outlook, Word og Excel.
Teris hefur sett upp MOSS fyrir vefsíður á internetinu og er sú uppsetning einstaklega vel heppnuð og að sjálfsögðu með öryggið að leiðarljósi. Óhætt er að segja að Teris hafi skipað sér í röð fremstu MOSS sérfræðinga með þessari uppsetningu og hefur hún vakið athygli víða.
Teris býður upp á eftirfarandi þjónustu vegna vefa í MOSS 2007:
- Uppsetning vefa - bæði innri og ytri
- Útlitshönnun
- Ráðgjöf
- Verkefnastjórnun
- Kennsla
- Útfærsla á sérlausnum
- Samþætting við ytri gagnagrunna
- Hýsing og rekstur
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um MOSS lausnir Teris eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is