Þjónustumiðuð kerfishögun (Service Oriented Architecture - SOA)


Þjónustumiðuð kerfishögun eða SOA miðar að því að hvert hugbúnaðarkerfi veiti aðgang að sínum gögnum og aðgerðum á staðlaðan og samræmdan hátt, þannig að önnur kerfi geti nýtt sér gögnin með lágmarks fyrirhöfn og tilkostnaði.

Krafan um samþættingu er lykilatriði í uppbyggingu upplýsingakerfa, þar sem upplýsingakerfi eru tengd saman með vel skilgreindum gagnabrautum eða þjónustubrautum (e. Enterprice Service Bus – ESB).

Fæst eldri hugbúnaðarkerfi styðja slíka hugmyndafræði.  Flest fyrirtæki geyma upplýsingar sínar í mörgum mismunandi gagnagrunnum og kerfum og  sitja því oft upp imeð ósamræmanleg kerfi.  Innleiðing SOA felst oftast í því að “opna upp”  eldri kerfi þannig að önnur hugbúnaðarkerfi geti nýtt sér gögn úr þeim. Einnig hafa hugbúnaðarhús í auknum mæli þróað ný kerfi frá grunni þannig að þau taki tillit til SOA högunar og geti tengst þjónustubrautinni.

Genius Process Manager - verkröðun og ferlastýring
Genius Process Manager er verkröðunar og ferlastýringarvél sem byggir á Genius Server.  Með Genius Process Manager (GPM) er mögulegt að skilgreina ferla fyrir vefþjónustur þannig að gögn á tilteknu formi séu sótt/send með ákveðnum hætti á tilteknum tíma/tímabilum.

Genius Process Manager byggist upp af einföldu Windows notendaviðmóti þar sem ferlar eru settir upp og Windows þjónustu sem stýrir ferlunum.

Genius Excel Add-in - bein tenging við Microsoft Excel
Með Genius Server fylgir Microsoft Excel viðbót (e. Add-in) sem gerir notendum kleift að nálgast allar vefþjónustur beint í gegnum Microsoft Excel. Handvirkur flutningur gagna úr öðrum kerfum yfir í Microsoft Excel heyrir því sögunni til sem sparar bæði tíma og  minnkar villuhættu.

Engu skiptir hvort gögnin komi frá upplýsingakerfum fyrirtækisins eða frá utanaðkomandi upplýsingaveitum.

Genius Excel Add-in  breytir því Microsoft Excel í enn öflugra greiningartól þar sem gögnum er umbreytt í lifandi upplýsingar án fyrirhafnar eða forritunar. Sömu upplýsingar er einnig hægt að birta á vefsíðum eða í sérsmíðuðum birtingarforritum.

Helstu kostir

  • Genius Excel Add-in er einfalt í uppsetningu og notkun
  • Ekki þörf á forritun
  • Tengir lifandi gögn við Microsoft Excel skjöl
  • Eykur notagildi Microsoft Excel 

Einfaldar þróun og umsýslu vefþjónusta
Genius Server byggir á XML vefþjónustum og gerir tæknimönnum kleyft að þróa og reka safn af vefþjónustum í gegnum einfalt vefviðmót. Tæknimenn geta á afar einfaldan hátt byggt upp safn af vefþjónustum ofan á undirliggjandi gagnagrunna og hugbúnaðarkerfi og engin þörf er því fyrir sérhæfða forritunarþekkingu.

Fullkomin aðgangsstýring
Genius Server býr yfir öflugu og sveiganlegu aðgangsstýringarkerfi sem gerir rekstrarmönnum kleyft að stofna notendur og notendahópa og veita þeim aðgang að einstökum þjónustum.  Aðgangsstýringarkerfið byggir einnig á Microsoft Active Directory og því er hægt að nota þá notendaskráningu og hópa sem fyrir eru hjá fyrirtækjum.

Auðvelt að tengja við ytri vefþjónustur
Með Genius Server  er hægt er að hjúpa ytri vefþjónustur frá þriðja aðila, með því að tiltaka URL fyrir WDSL fyrir viðkomandi þjónustur.

 


 

Skip Navigation Links