Netvision - öflugt skjákerfi á íslensku


Netvision er öflugt skjábirtingarkerfi sem auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að miðla upplýsingum á flatskjám á lifandi hátt til þeirra sem við á (t.d. starfsfólk og/eða viðskiptavinir). Netvision býr yfir fjölbreyttum eiginleikum við uppsetningu á skjásýningum og er mjög einfalt í notkun. Sem dæmi um notkunarmöguleika má nefna:

  • Birting auglýsinga – bæði kyrrmyndir og hreyfimyndir
  • Miðlun á ímyndarefni
  • Tilboð og vörukynningar í verslunum
  • Upplýsingamiðlun til starfsmanna – t.d. í mötuneyti eða á vinnustöðum þar sem starfsmenn  eru ekki með aðgang að tölvu
  • Birting lifandi upplýsinga – t.d. fréttir, veður og gengi gjaldmiðla
  • Sjónvarpsútsendingar

Einfalt í uppsetningu og rekstri

Allt efni sem birt er með Netvision skjáupplýsingakerfinu kemur frá öruggu miðlægu stjórnkerfi (Netvision Media Server) sem hýst er hjá Teris. Við hvern upplýsingaskjá er síðan komið fyrir nettengdri tölvu með spilara (Netvision Media Player). Stjórnkerfið uppfærir svo sjálfkrafa skjásýningarnar á hverjum spilara. Umsjónaraðilar geta tengst stjórnkerfinu hvar sem er og stýrt sýningum á einstökum spilurum, það eina sem þarf er nettenging og vefvafri.

Helstu eiginleikar Netvision skjálausnakerfisins

  • Öllum auglýsingaskjám stýrt frá miðlægu stjórnkerfi í gegnum vefviðmót.
  • Auðvelt að stýra sýningum á mörgum skjám samtímis frá einum stað.
  • Mögulegt að birta fjölbreytt skráarsnið.
  • Auðvelt að birta lifandi upplýsingar af ýmsu tagi.
  • Sjálfvirk uppfærsla á hugbúnaði – bæði á stjórnkerfi og spilurum.
  • Dagskrá er stýrt eftir dagatali – sjálfvirk stýring á mismunandi sýningum eftir dögum eða tíma dags.
  • Mögulegt að nota sem skjáhvílukerfi (e. screen saver) fyrir starfsmenn.
  • Spilari heldur áfram að keyra skjásýningu þó svo nettenging við stjórnkerfi rofni.
  • Spilari helst alltaf í forgrunni á skjám – Windows villumeldingar birtast ekki heldur haldast í bakgrunni.
  • Notendaviðmót á íslensku og ensku.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Netvision eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is

       


Skip Navigation Links