Verkferlakerfi

Með verkferlakerfi Teris er auðvelt að skilgreina og framkvæma fyrirfram ákveðna vinnuferla allt frá umsókn til afgreiðslu. Hægt er að sérsníða verkferla að þörfum hvers og eins, eftir þörfum viðskiptavina.  Kerfið tengist mörgum öðrum kerfum og er því hægt að samþætta þær upplýsingar sem þörf er á hverju sinni.  Með því að nota verkferlakerfið þá eru líkur á mistökum sáralitlar, afgreiðsla mála verður hraðari, aðgengi að upplýsingum og rekjanleiki mun auðveldari. Öll verkferli eru vistuð miðlægt í samskiptasögu viðskiptatengslakerfis ásamt öðrum samskiptum við viðskiptavini.  Nú þegar er fjöldi staðlaðra verkferla til fyrir fjármálafyrirtæki enda hefur Teris þróað kerfið í 10 ár í samvinnu við fjármálafyrirtæki.  Verkferlakerfið er hluti af Spakslausnum Teris.

Tengingar við önnur kerfi

Verkferlakerfið tengist ýmsum kerfum innan Teris og má þar nefna Umsóknarkerfi Teris, Skeytasendingakerfi Teris, Skjalavistunarkerfi, Tryggingarkerfi Spaks og Microsoft Outlook.  Þess utan tengist kerfið ytri aðilum eins og Reiknistofu bankanna, Valitor, Borgun, Creditinfo og íbúðarlánasjóði.  Með því að tengja kerfið öðrum kerfum þá er einfalt að fá flæði í ferilinn án þess að þurfa að fara yfir í annað kerfi.  Það er t.d. hægt að taka vefumsókn sem kemur af internetinu beint inn í verkferli og afgreiða alla leið án þess að ræsa annað kerfi.

Staðlaðir verkferlar

Í kerfinu er fjöldinn allur af verkferlum sem hægt er að aðlaga þörfum hvers og eins.  Þeir verkferlar sem búið er að skilgreina eru að mestu sérsniðnir fyrir fjármálafyrirtæki og taka þeir mið af þeim kröfum sem eru gerðar til fyrirtækja í fjármálastarfsemi.  Dæmi um staðlaða verkferla er lánaumsýsla, útlánastýring, peningaþvætti, skilmálabreytingar, stofnun reikninga og korta, veðflutningar, veðleyfi, tryggingarbréf o.s.frv.

Helstu kostir Verkferlakerfis

  • Utanumhald og umsýsla verkferla einföld, örugg og skýr
  • Mikið til af stöðluðum verkferlum
  • Sveigjanlegt og hægt að aðlaga að þörfum hvers og eins
  • Yfirlit yfir stöðu á verkferlum í vinnslu
  • Rekjanleiki og samskiptasaga
  • Aðgangsstýringar
  • Tengingar við önnur kerfi
  • Hraðari og öruggari vinnsla
  • Hægt að klára allt afgreiðsluferlið í einu kerfi

Notendur

Notendur kerfisins eru fjölmargir og meðal viðskiptavina eru allir sparisjóðir landsins og MP banki.  Notendur gegna mjög ólíkum hlutverkum til dæmis eru, gjaldkera, þjónustufulltrúa, innri endurskoðendur, bakvinnsla og ýmsir stjórnendur allt notendur að kerfinu. Margir notendur geta ekki hugsað sér að vera án kerfisins og hefur það margsannað sig í gegnum árin.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Verkferlakerfið eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is.

       
Skip Navigation Links