Viðskiptamannakerfi


Í Viðskiptamannakerfi Teris er hægt að sjá á einum stað heildarupplýsingar um viðskiptavini. Þar er yfirlit yfir alla reikninga, samninga, innlán, útlán, vensl, athugasemdir ásamt yfirliti yfir öll skráð samskipti við viðskiptamann. Dregnar eru saman upplýsingar úr mörgum kerfum svo kerfum Reiknistofu bankanna, Lánstrausti, Valitor, Borgun, LÍN, Íbúðalánasjóði, Innheimtukerfi, Vefbanka, Greiðsluþjónustu, Vanskilakerfi, Flexcube, Millifærslukerfi,  og Lífeyriskerfi. Í kerfinu er öflug viðskiptamannaleit þar sem hægt er að leita eftir ýmsum atriðum s.s. kennitölu, nafni, reiknisnúmeri og símanúmeri.

Viðskiptamannakerfið er hluti af Spakslausnum Teris. 

Í viðskiptamannayfirliti eru m.a. eftirtaldar upplýsingar:

  • Samskiptasaga s.s. símtöl, tölvupóstur, sms, aðverðir, verkferli, synjanir o.fl.
  • Fjárhagslegar upplýsingar s.s. innlán, útlán, verðbréf
  • Tryggingar vegna útlána
  • Persónuupplýsingar
  • Ýmsar athugasemdir
  • Upplýsingar um tengda aðila
  • Arðsemi
  • Ef um fyrirtæki er að ræða eru ýmsar fyrirtækjatengdar upplýsingar s.s. atvinnugrein/Ísat og Lánshæfismat

Í viðskiptamannaskráningu eru m.a. eftirtaldar upplýsingar:

  • Kennitala
  • Lögheimili/aðsetur
  • Boðleiðir, s.s. símanúmer og netfang
  • Basel II breytur, s.s. CAD  flokkun, heimaríki, lánshæfismat
  • Afrit af skilríki
  • Umsjónaraðili viðskiptavinar
  • Eftirfylgni

Helstu kostir Viðskiptamannakerfis

  • Allar upplýsingar um viðskiptavin á einum stað
  • Tengingar við undirliggjandi kerfi
  • Öll samskipti skráð
  • Auðveldar samskipti við viðskiptavini
  • Betri þjónusta

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Viðskiptamannakerfið - Spak eða þá þjónustu sem er í boði, sláðu þá á þráðinn í síma 563-3300 eða sendu okkur línu á netfangið teris[at]teris.is.

       
Skip Navigation Links